PDA

View Full Version : Secrets of the Dragonstones [IC]


Swooper
01-07-2008, 06:35 PM
Þið hafið verið að ferðast í gegnum Blackweald skóg í Terenoc síðustu daga - í upphafi voruð þið að fylgja Saldeskum farandkaupmanni að nafni Jószep, en hann hafði einungis áhuga á fylgd að smábæ þar sem hann gat selt afganginn af flauelinu sem hann var með, en þið hélduð áfram gegnum skóginn. Þegar langur tilbreytingalaus dagur á göngu gegnum laufþykknið er að kvöldi kominn þynnist skógurinn meðfram veginum, og þorp umlukið skíðgarði úr trjábolum kemur í ljós framundan. Vörður með spjót lýkur upp hliðinu kallar þegar þið nálgist: "Hverjir eruð þið ferðalangar, og hvað dregur ykkur hingað til Launise?" Slíkt kemur ykkur lítið á óvart, hér um slóðir eru bæir víggyrtir og yfirleitt er grennslast fyrir um ferðamenn áður en þeim er hleypt inn fyrir. Þó er fólkið oftast vingjarnlegt og gestrisið þegar inn fyrir er komið, þetta er einungis varúðarráðstöfun gagnvart þeim hættum - ræningjum, útlögum, úlfum, drýslum og fleiru enn verru - sem leynast í skóginum.

Jæja, þá er þetta byrjað. Nú ætlast ég til að allir characterar kynni sig áður en lengra skal haldið, svona til að koma ykkur í character(a). Þegar þið talið í character, notið liti og bold. Einn litur per character takk, svo það sé auðvelt að sjá hver er að tala. Það ætti að vera nóg af litum fyrir ykkur alla, ef það eru einhver slagsmál um vinsæla liti er það bara fyrstur kemur, fyrstur fær. Allt annað en lýsingar í character fara í svona spoiler sem þið kunnið vonandi að gera ennþá. Þá er ég að tala um hluti eins og tengingaköst, spurningar sem er ekki viðeigandi að setja í OOC þráðinn, hluti sem þið 'gerið' (ss. "Ég kasta Stinking Cloud, miðað á reitinn fyrir framan orka shamaninn, Fort DCið er 17 blablabla" eða "Ég leita undir rúminu" osfrv.) og þess háttar. Ef eitthvað er ekki ljóst, bara spyrjið mig á MSN eða eitthvað.

Sir Thorri
01-07-2008, 06:59 PM
Heilir og sælir! Waedry ap Gwdyn, til þjónustu reiðubúinn! Waedry tekur ofan hjálminn og hneigir sig djúpt.

Borogrim hristir hausinn lítilega áður en hann lítur af hátíðlega gnóminum og kynnir sig.
Borogrim Marmaraskeggur heiti ég, og erindi okkar er næturgisting og annars stutt viðkoma.

Cormorant
01-07-2008, 07:12 PM
Velan tekur skref fram og heilsar verðinum

Ég er Velan Carrick og einungis förulangur á þessum slóðum, þó svo að öðru hverju fylgi maður kaupmönnum hér í gegnum skóginn. Varla kannist þið við hann Jószep? Við fylgdum honum nýlega.

Jæja, þetta er þá loksins komið af stað, sjáum hvurnig þetta fer.

Lurch
01-08-2008, 10:56 AM
Ljóshærður ungur maður réttir upp hönd og segir
Sæll vertu vörður ég heiti Hygweard
Mjög þrekinn dvergur stígur framm úr mannmergðinni.
Ég er Rodovan Broncestein

Johsi
01-09-2008, 07:57 AM
Mjór maður og dökkur yfirlitum stígur fram teymandi múlasna.
Xerxes er nafnið segir hann mjóróma.

Stór og sterk vera stígur fram við hlið Xerxes. Vörðinum bregður í brún þegar hann sér að þetta er álfur, en grænn álfur með hreistur og vængi.

Shinlongrien Drekasonur heiti ég. Borogrim talaði fyrir hönd okkar allra þegar hann sagðist leita að næturgistingu.

Swooper
01-09-2008, 12:37 PM
Vörðurinn virðir ykkur fyrir sér stutta stund og opnar svo hliðið upp á gátt. "Gott og vel, velkomnir til Launise, ferðalangar. Þið getið fundið gistingu á þorpskránni, Skjónum og hárkollunni." Hann bendir ykkur niður eftir aðalvegi þorpsins þegar þið komið inn fyrir hliðið.

Launise er smáþorp með einungis um 100 íbúa, giskið þið á miðað við húsafjölda. Húsin eru öll byggð úr tré, enda auðvelt að útvega slíkan efnivið hér inni í miðjum skóginum. Göturnar eru tómar enda tekið að skyggja, en þið heyrið hljóð og sjáið ljós koma út um gluggann á einu húsinu við torgið í miðju þorpinu. Fyrir ofan dyrnar að því húsi sjáið þið skilti með mynd af svarthvítum fugli með eitthvað sem á sennilega að vera hárkolla á höfðinu.

Þegar inn á kránna, sem er tvílyft timburhús, er komið sjáið þið að hópur þorpsbúa virðist vera þar saman kominn og á í hörkusamræðum, sem var hávaðinn sem þið heyrðuð. Það er autt ferhyrnt borð með átta sætum umhverfis það í einu horninu, og gengilbeina sem var að sópa þegar þið komuð inn fyrir býður ykkur sæti.

Látið það ekki koma ykkur á óvart að ég "spóli yfir" staði þar sem ég hefði venjulega leyft ykkur að segja eitthvað eins og "við förum á kránna" í venjulegri spilun, þetta er bara gert til að flýta fyrir - svona online leikir verða oft ansi hægir.

Cormorant
01-10-2008, 05:16 PM
Velan gengur að borðinu, pantar sér stóra máltíð, enda stór maður, stóra könnu af góðu öli, sest niður og fer úr stígvélunum, og slappar af eftir langann göngudag.

Lurch
01-10-2008, 07:10 PM
hinn snoppu fríði Hygweard fær sér sæti við hlið Velan og byður um svipaðan skammt.

Rodovan gengur inná staðinn og fer að einu borðanna sem eru í salnum byður um bjór og fer síðan að kvarta í öllum þeim sem vilja heyra hvað þetta er slappur bjór og hvað dvergarnir kunna allir betri uppskriptir af bjór en menn

Swooper
01-10-2008, 08:07 PM
Hópurinn kemur sér vel fyrir, slakar á og sest að snæðingi. Þið getið ekki annað en tekið eftir umræðuefni annara kráargesta, sem virðist snúast um dreng úr þorpinu sem týndist í skóginum fyrr um daginn. Sumir virðast sannfærðir um að hann skili sér á endanum, aðrir eru áhyggjufullir um að hann hafi farið of nálægt Svartánni.

Áður en langt er liðið á máltíðina gengur ljóshærður og svuntuklæddur maður á miðjum aldri að borðinu ykkar. Hann virðist frekar niðurdreginn en jafn framt mikið niðri fyrir. "Ég heiti Tolmar," segir hann, "og ég er eigandi þessarar krár. Mætti ég eiga orð við ykkur, ferðalangar?" Án þess að bíða eftir svari sest hann í auða sætið við borðið ykkar og útskýrir mál sitt: "Hópur af ungum börnum hélt út í skóginn snemma í morgun til að leika sér. Þau höfðu öll vit á að halda sig nærri þorpinu, og einn af eldri drengjunum var sendur til að hafa auga með þeim til öryggis. Um miðjan dag uppgötvaði hann að eitt barnið var horfið. Fóstursonur minn, Arton. Krakkarnir leituðu í skóginum í allan dag, kölluðu á hann... en þau fundu hann ekki. Núna er verið að skipuleggja leitarflokk sem fer af stað við sólarupprás í fyrramálið en... Enginn okkar er sérlega ratvís, við erum bændur, ekki veiðimenn. Við kunnum ekki að rekja slóðir, við gætum allt eins eyðilagt slóðina ef við rækjumst á hana fyrir tilviljun! Það eru heldur ekki mjög margir sem þorpið má missa úr vinnu á þessum tíma, það þarf að sjá um skepnur og sá í akra. Hver maður er mikils virði... getið þið hjálpað til við leitina á morgun? Ég skal bjóða ykkur ókeypis mat og gistingu ef þið leitið með okkur, og fundarlaun skyldi það vera einhver ykkar sem finnur drenginn minn. Ef villidýr hafa ekki rifið hann í sig."

Cormorant
01-10-2008, 08:31 PM
Á Velan kemur lítið kímnisglott, þó ekki illkvitnislegt.

Það er þó einhver heppni í óheppni. Ég er milli verkefna eins og stendur, og get því hjálpað við leitina, Við finnum fósturson þinn vafalaust, ja það er ef þið hinir sjáið ykkur fært að hjálpa manninum?

Bíð eftir svörum hinna

Býst ég þá við að menn séu að skipuleggja leitina núna og í bítið? Það væri gaman að heyra áætlun ykkar þegar hún er fullbúin... já og eitt annað, hve langt inn í skóginum voru þau?

Lurch
01-10-2008, 08:38 PM
Hygweard segir auðvitað hjálpum við þér. er það ekki strákar


Rodovan gjógir augunum til Hygweard og segir Hvern ertu að kalla strák félagi.
og heldur síðan áfram að sötra úr glasinu og umlar auðvitað skulum við hjálpa......

....ef við fáum eitthvað útúr því

Sir Thorri
01-11-2008, 03:04 PM
Seg ei meir, lagsmaður, og gef mér heldur annan skammt af kartöflustöppu og óttastu ei meir um son þinn, við finnum hann áður en dagur rís! Og minnstu ekki á fundarlau-
Dvergarnir tveir eru snöggir að þagga niður í Waedry.

Mhm. Einmitt það. Hvar sást til fóstursonar þíns seinast?

Johsi
01-12-2008, 05:23 AM
"Fundarlaun segir þú. Hve mikióÓÓÚÚÚ"
Shinlongrien rekst "óvart" með vængina sína í höfuð Xerxes áður en hann segir "Að sjálfsögðu hjálpum við ... allir"
Xerxes hvessir á hann augun, nuddar á sér höfuðið og segir "jú... já ... ætli það ekki."

Swooper
01-12-2008, 02:16 PM
"Þakka ykkur fyrir," segir Tolmar. "Ég er ekki ríkur maður, en kráin hefur þó gengið ágætlega upp á síðkastið og ég get boðið ykkur tuttugu gull-mörk* hverjum, og jafnvel innheimt greiða sem ég á hjá kaupmanninum og járnsmiðnum ef vörur þaðan freista ykkar." Hann lítur í átt að Borogrim og Velan: "Síðast sást til Artons í rjóðri um hálftíma göngu frá þorpinu til suðurs. Errick, drengurinn sem gætti barnanna í gær mun leiða leitarmenn þangað í fyrramálið." Brúnin á Tolmari hefur lyfst síðan hann kom að borðinu ykkar, og hann stendur upp. "Njótiði máltíðarinnar herramenn. Hanna!" kallar hann á gengilbeinuna, "fylltu krúsir þeirra og bættu á diskana!" Hann gengur bak fyrir barborðið og Hanna sér til þess að þið hafið nóg að eta og drekka um kvöldið.

*Mark er gullmyntin sem er slegin í Terenoc.

Ef þið hafið einhverjar frekari spurningar eða e-ð sem þið viljið gera um kvöldið, skjótið. Annars látið mig vita að þið séuð tilbúnir að fara yfir á næsta dag.

Cormorant
01-12-2008, 06:53 PM
Ja, ekki hvern dag sem maður lendir í þessu (Gæðir sér á matnum)

Kveldið er hinsvegar notað í að spyrja þá heimamenn sem virðast hafa verið partur af umræðunni sem var í gangi þegar hópurinn kom inn t.d. gengilbeinuna um svæðið og skóginn í kring.

Fljótlega eftir það, er skriðið í bælin.

Gerist það oft að krakkar týnist hérna, ef svo er, finnast þeir ekki venjulega fljótt aftur? Eru dýrin hér í kring skæð? Hvernig lítur Arton út?

Þessar spurningar ber ég upp við þorpsbúa.

Ekkert ætla ég að gera annað um kveldið hinsvegar, nema að spyrja um hvað morgunmaturinn verði, og hvort að við getum fengið slatta af honum í nesti, þar sem eldamennskan (geri ég ráð fyrir) hafi verið góð.

Johsi
01-12-2008, 07:12 PM
Shinlongrien Biður um meiri mat. Við verðum víst að safna styrk fyrir langa útidvöl. Eftir það dregur hann sig í hlé inn á herbergið sitt.

Xerxes borðar í kyrrþey og lætur sig hverfa hljóðlega eftir matinn, þegar dvergarnir fara að hafa hærra.

Xerxes fer að skoða bæinn nánar, sérstaklega hvernig læsingar eru í húsum og hvort mikið sé af opnum gluggum á efri hæðum húsa. Hann verður að halda sig í formi þegar hann er svona uppí sveit. Ef hann sér eitthvað auðstelanlegt lætur hann að sjálfsögðu greipar sópa.

Sir Thorri
01-14-2008, 06:51 PM
Meðan hópurinn situr að snæðingi tekur Borogrim til máls. Ég velti því fyrir mér hvort einhverjum hafi dottið í hug möguleikinn að hér hafi ekki einungis verið um slys að ræða.
Hópurinn lítur hvumsa upp á Borogrim, sem heldur áfram Hvort að einhver hafi átt eitthvað sökótt við strákinn. Hvernig var t.d vinátta hans og þessa Erricks? Við getum ekki neitað að horfast í augu við þann möguleika að Arton hafi vísvitandi verið leyddur út í... ógöngur.
Borogrim! Þú ert þó ekki að reyna halda því fram að börnin séu að, að.. skaða hvort annað vísvitandi?? Þetta eru krakkar! svarar Waedry með ásökunartón.
Ah. Þú verður að athuga það, minn litli vin, að menn eru eigingjarnar verur í hæsta lagi. Þeir hafa auk þess ekki jafn sterka réttlætiskennd né tilhneygingu til löghlýðni. Ungir og vitlausir menn, gæti ég vel ímyndað mér að væru þeim mun líklegri til að láta eigingirnina hlaupa með sig í gönur.
Borogrim réttir upp fingur til að stöðva gnóminn í að grípa fram í fyrir sér.
Auk þess, auk þess, er ég ekki að segja að það hafi endilega þurft að vera eitt barnanna. Fóstursonur ríks kaupmanns gæti verið fýsileg bráð mannræningja sem hyggjast heimta lausnargjald. Það sem ég er kannski fyrst og fremst að segja, er að við ættum að vera við öllu búnir. Þetta gæti orðið leiðindamál...

Cormorant
01-14-2008, 08:58 PM
Ja, eitt er víst, að þú ert með Ímyndunaraflið í lagi, og ég hrósa þér fyrir það, en skal ég þó bíta á agnið.
Það gæti vel verið að einn krakkanna hafi platað strákinn til að gera einhverja vitleysu, enda kemur það öðru hverju fyrir, en það á líklega eftir að komast upp á næstu dögum, og ætla ég að efa það að eldri strákurinn myndi gera slíkt, en honum er ekki, ja ógnað af hinum yngri krökkunum, auk þess að hann bar ábyrgð á þeim. Ekki hef ég heyrt það á lýsingunni að nokkur jafnaldri hans hafi verið með, og því ekki félagi hans þar til að etja hann áfram, eða stelpa sem hann væri með stæla fyrir. Við munum komast að því á morgun, hvort við getum treyst stráknum eða ekki.

Varðandi mannrán, þá held ég að það sé nokkuð langt gengið að spekúlera með slíkt... sérstaklega upp á lausnargjald. Þó að þessi maður sé vel settur í bænum, þá er hann ekki ríkur. Þú mátt segja það um okkur að sumir okkar mannanna erum kannski eigingjarnir að ykkar mati, en ekki erum við þekktir fyrir heimsku.
(Velan talar hvasst og greinilegt er að honum er ekki skemmt hverning dvergurinn talar niður til mannanna)
Ef að barninu hefur verið rænt, þá hefur það verið út af öðrum ástæðum.

Ég held hinsvegar að drengurinn sé einungis týndur, eins og krakkar gera, og við finnum hann áreiðanlega.

En það þýðir að sjálfsögðu ekki að við getum ekki rætt um það yfir góðum mat. Ég legg þó til að jú, viðbúnir flestu, en ekki hafa of miklar áhyggjur af þessu. Fer illa í magann (brosir).

Swooper
01-16-2008, 02:31 PM
Um kvöldið gerist eftirfarandi:

Velan: "Skógurinn er að sjálfsögðu hættulegur staður," segir ein konan á kránni þér, "en venjulega týnast börn ekki lengi í einu í skóginum. Við brýnum fyrir þeim að vera aldrei ein á ferð, en í dag voru þau í feluleik og Arton varð viðskila við hópinn."
Þegar þú spyrst fyrir um dýralífið í skóginum tala innfæddir um þetta venjulega sem þú myndir búast við að finna í skógi á þessum slóðum - birni, úlfa, greifingja, broddgelti og þess háttar. Flest halda þau sig all-fjarri þorpinu að jafnaði. Þegar þú spyrð skógarhöggsmann nokkurn sem situr með ölkollu í einu horninu á kránni, færðu þó athyglisverða sögu. Hann segir þér að hann hafi fyrir nokkrum árum farið ásamt félögum sínum djúpt inn í skóginn, þar sem trén eru stór og þykk. Þeim fannst lengi vel eins og fylgst væri með þeim, þar til á endanum þeir sáu glitta í skepnu sem var harla ógnvænleg. Skógarhöggsmaðurinn lýsir fyrir þér hræðilegu skrýmsli, svart og rautt að lit, á stærð við hest, með langar hárbeittar klær og vígtennur. Hér verða lýsingarnar óljósari, en sagan endar þannig að þeir komust allir í bæinn við illan leik.
Lýsing á Arton er auðfengin hjá kráareigandanum, fósturföður hans. Hann er lítill eftir aldri, með stuttklippt dökkbrúnt hár, útstæð eyru og freknótt andlit. Hann var klæddur í ljósgræna skyrtu og stuttar brúnar buxur þegar hann fór út um morguninn.
Í morgunmat er brauð og köld pylsa, og sjálfsagt er að fá afganginn í nesti.

Xerxes:Þú röltir um þorpið, sem er myrkvað fyrir utan einstaka lampatýru í sumum glugganna. Myrkrið er þér engin fyrirstaða þökk sé meðfæddrar nætursjónar. Dýpst í skógunum í suðaustri, þar sem xeph hafast við, verður skógurinn sums staðar svo þykkur að sólarljósið nær ekki niður á skógarbotninn. Húsin eru flestöll frekar fátækleg timburhús á einni hæð, með ýmist strá- eða timburþökum. Kráin og hús kaupmannsins eru einu tvílyftu húsin. Þú sniglast í kringum kaupmannshúsið (þér virðist búðin vera á neðri hæðinni og íbúð á þeirri efri) í dágóða stund, en það er kyrfilega læst og hlerar fyrir gluggunum. Þú ákveður að láta það eiga sig í bili, röltir aðeins um göturnar í viðbót en finnur ekkert áhugaverðara en strákúst eða tóma fötu.

Lurch
01-16-2008, 05:33 PM
Eftir því sem ölkollurnar verða fleirri eftir því sem að á líður á kvöldið, verður Radovan málglaðari, og Borogrim gerir ekkert til að draga úr móði félaga síns.
Og svo er þetta ekkert veður sem er hérna! Hvað maður gæfi ekki fyrir góðan snjóstorm! Og ekki undrar mig að börnin týnist. Engin samábyrgð í þessum mann-!
Radovan, ég held að við ættum ekki fá þorpið alfarið á móti okkur... grípur Borogrim fram í.
Hrmph. Þeir virðast þurfa aðstoð okkar dverganna hvort sem er. muldrar Radovan á dvergnesku.

Dvergarnir eru síðan meðal síðustu gesta til að yfirgefa matsalinn, og þramma upp á herbergi sín, með beinakex að nesti sem að þeir höfðu sníkt hjá gengilbeinunni.

Hygeweard rabbar við nokkra þorpsbúa og fær sér hressingargöngu í skógarminninu. Nema nokkuð komi upp á, snýr hann fljótt upp á kráarherbergi sitt, og undirbýr sig fyrir morgundaginn.

Swooper
01-21-2008, 02:42 PM
Morgunninn eftir, fljótlega eftir sólarupprás, vekur Tolmar ykkur alla með banki á herbergishurðirnar ykkar. Þið fáið morgunmat í matsalnum á neðri hæð krárinnar, og síðan safnist þið saman ásamt öðrum leitarmönnum við brunninn í miðju þorpinu. Hópurinn er ekki stór. Fyrir utan ykkur er um tugur fullorðinna, Tolmar þar á meðal, og svo drengur á að giska þrettán vetra, sem mun vera Errick. Hann er þrekinn og útitekinn, með dökkbrúnt hrokkið hár.

Þegar allir leitarmenn eru mættir er laggt af stað út um þorpshliðið og inn í skóginn. Errick fer fremstur til að vísa veginn að svæðinu sem börnin léku sér á daginn áður. Eftir rúmlega hálftíma göngu eftir troðnum slóða í suðurátt, kemur hópurinn í nokkuð stórt rjóður, um sex eða sjö metrar að þvermáli. "Hér," útskýrir Errick, "sáum við Arton síðast. Krakkarnir voru í feluleik, og höfðu tekið nokkar umferðir áður en Arton hreinlega hvarf. Hann fannst aldrei í síðasta skiptið sem hann faldi sig. Ég held að hann hafi síðast farið í þessa átt," segir hann og bendir í suð-vestur.

Jæja, nú megið þið taka Survival köst upp á að finna slóðina, eða ef þið hafið einhverja aðra hæfileika sem þið viljið reyna að nýta ykkur, spurningar eða eitthvað annað - takið það fram. Sir Waedry, endilega merktu við á charactersheetinu þínu hvaða manouvres þú ert með ready (þrír af þeim fjórum sem þú kannt). Rodovan, skrifaðu inn hvaða galdra þú memorisar.

Cormorant
01-21-2008, 03:59 PM
Þegar í rjóðrið er komið, og Errick hefur talað, lítur Velan í kringum sig. "Nújæja, þá er bara að byrja leitina". Hann gengur því hægt í suð-vestur átt, og leitar gaumgæfilega eftir brotnum greinum, eða einhverjum ummerkjum eftir strákinn.



Ja, þar sem þú vilt vita manuver og galdra, þá vil ég koma því á framfæri að ég sumsé nota Glaive-inn minn sem göngustaf, þar til skógurinn verður of þykkur.

Ég ætla líka að halda mér framarlega í hópnum, ef ekki fremst.

Survival Roll:
[roll0]

Sir Thorri
01-23-2008, 09:56 PM
Óttaleg reikistefna er þetta, það væri nú nær að gera þetta eitthvað skipulega... Muldrar Borogrim, en gerir þó engar athugasemdir sem slíkar við forystumenn leitarhópsins, en fer þess í stað að dæmi Velan og skimar eftir einhverju sem gæti reynst vísbending.

Borogrim kastar þá upp á untrained Survival check: [roll0]

Sir Waedry hinsvegar, hnippir í næsta mann (eða hnéið á næsta manni) dregur augað í pung og segir spekingslega Þegar þú ert í vafa, fylgdu nefinu á þér. Að því mæltu þefar hann út í loftið og röltir af stað.

Ég býð stjórnanda að kasta scatterdie fyrir Waedry til að ákvarða í hvaða átt gnómurinn þvælist, með þó þeim fyrirvara að hann röltir sennilega ekki rakleiðis til baka í átt að þorpinu (Og þó, þar sem að hann er með 7 í wisdom, gæti ég alveg trúað honum til þess...)

Lurch
01-27-2008, 04:55 PM
Hygweard segir ekkert ótrúlega margt muldrar þó eitthvað og fer byrjar að skoða sig um
kasta survival jámm og er meirað segja með +6 í því [roll0]Hygweard er með Power áruna í gangi +1 damage rolls

Rodovan er gengur frekar nálægt Borogrim, hann kjaftar kanski meira en nauðsinlegt er. Við Verðum að Halda okkur frekar nálgt hverjum örðum allaveganna í sjónlínu.
Rodovan kastar uppá untrained survival. [roll1]

Johsi
01-28-2008, 05:58 AM
Xerxes fer kíkir aðeins í kringum sig, en veit ekki alveg að hverju hann er að leita. untrained survival með +2: [roll0]

Shinlongrien er ekki mikið betri að átta sig á þessum skógi þar sem hann er bara vanur sínum álfaskógi. untrained! survival með +0 :smallredface: [roll1] Já ég klikkaði smá á skógarpælingunni þarna

Swooper
02-01-2008, 01:17 PM
Leitarhópurinn dreifir sér um skóginn til að kanna sem mest svæði, þið gætið ykkar þó á að vera innan kallfæris hver við annan. Engum ykkar tekst að finna tangur né tetur af drengnum áður en sólin er komin í hádegisstað, og öðrum leitarmönnum gengur svipað vel. Það er eins og skógurinn hafi hreinlega gleypt hann. Um hádegisbilið er áð í öðru rjóðri til að snæða hádegisverð í flýti áður en leitinni er haldið áfram. Stuttu eftir það gengur Waedry hins vegar fram á nokkuð sem gæti reynst hjálplegt: Stór og pattaralegur skógarhéri situr og japlar í makindum á fjólu í litlu rjóðri þar sem sólinni hefur tekist að varpa geislum sínum í gegnum laufþykknið. Hann lítur upp, og Waedry finnst snöggvast eins og ekki sé laust við að hann sé sposkur á svipinn.

Sir Thorri
02-01-2008, 05:13 PM
Svona, svona Waffles, vertu kurteis. Segir Waedry og Waffles hættir lágværa urrinu sem hann hafði beint að héranum.
Waedry lítur í kringum sig og aðgætir hvort að nokkur annarra leitarmanna veiti honum athygli meðan hann nálgast hérann og ávarpar hann. Sæll félagi. Ekki geri ég ráð fyrir að þú hafir rekist á ungan mann á ferli hér í grend síðasta sólarhringinn. Eða orðið var við óvenjulegar mannveruferðir upp á síðkastið? Það gæti verið gulrót inn í myndinni ef svo er. Segir Waedry og blikkar hérann.

Swooper
02-02-2008, 08:41 AM
Hérinn virðir Waedry fyrir sér í stutta stund, og hnusar út í loftið áður en hann svarar: "Ég man eftir mann-ungunum sem voru hér í gær. Einn þeirra reyndi að henda steini að mér. Ég man líka að einn mann-unginn fór lengra inn í skóginn en hinir. Ég get fylgt þér þangað sem hann fór." Að því mæltu hoppar hann af stað í gegnum undirgróðurinn og Waedry á fullt í fangi með að fylgja honum. Hann hefur þó rænu á að kalla á restina af hópnum sem fylgir á eftir, upp til hópa skilningssljóir um hvers vegna gnómurinn hefur tekið upp á að elta héra allt í einu. Hygweard tekur hins vegar fljótt eftir barnssporum í moldarflagi við leið hérans, og hvetur hina áfram. Eftir flókinn eltingaleik gegnum burknaþykkni, undir trjárætur og yfir lækjarsprænur nemur hérinn staðar við jaðar stórs rjóðurs, nálægt bökkum Svartárinnar. Hann þiggur launin sem honum var lofað, og hverfur svo aftur inn í skóginn.

Nokkuð greinileg spor, sem er einungis hægt að áætla að tilheyri Artoni, liggja inn í rjóðrið. Þegar hópurinn gengur hikandi og var um sig áfram, sjá allir svo ekki er um villst að hér hafa átök átt sér stað. Grasið er víða hálf-troðið niður og sums staðar rifið upp. Þornað blóð má sjá á dauðum trjástofni í einum jaðrinum, og í grasinu þar á. Nokkrir hrafnar hnita hringi hátt fyrir ofan. Svo virðist sem spor drengsins liggi ekki út úr rjóðrinu aftur.

Cormorant
02-03-2008, 08:25 AM
Velan gengur rösklega inn í rjóðrið, og stefnir í átt að hröfnunum (það er, undir þá), og ætlar sér að leita þar, og allstaðar annarstaðar í rjóðrinu að Artoni, lifandi eða dauðum.
Velan er orðinn æstari og einbeittari en áður, eftir aðkomuna í rjóðrinu, þar sem nú er víst að eitthvað hefur í alvörunni gerst.
Þar sem engin fótspor sjást, þá leitar hann að dragförum eða einhverjum öðrum fótsporum en Artons.

Ja, ekki veit ég nákvæmlega hverju þarf að rolla hér, mögulega survival, en maður veit það barasta ekki, en þetta er nú allt á charactersheetinu, þannig að það ætti að reddast

Cormorant
02-03-2008, 08:44 AM
Survival Roll, trained

[roll0]

Search Roll, untrained

[roll1]

Swooper
02-03-2008, 09:55 AM
Velan gengur varlega þvert yfir rjóðrið og svipast um eftir ummerkjum eftir annað en drenginn. Hann finnur tvenn ólík spor í moldarflaginu: Annars vegar lítil en djúp klauf-spor, líklegast eftir villisvín. Þau spor enda í rjóðrinu. Hin vekja hins vegar upp minningu af sögu sem Velan heyrði á kránni kvöldið áður - spor eftir þófa með klóm, sem líkjast sporum fjallaljóns en eru um tvöfalt stærri. Þau spor liggja um mestallt rjóðrið, fram og til baka, en loks út úr því til suðurs. Velan gengur að stórri eik þar sem hrafnarnir virðast vera að safnast saman. Djúp klóför rista börkinn á einni hliðinni, og stofninn er blóðugur. Hann lítur upp í trjákrónuna, og sér hvað veldur. Blóðugt hræ af villisvíni situr skorðað milli tveggja greina hátt í eikinni.

Sir Thorri
02-03-2008, 10:18 AM
Hmmm. Jæja, svo virðist vera sem að spekúlasjónir mínar hafi ekki reynst réttar. Lítur út fyrir að strákurinn hafi ekki orðið fyrir barðinu á "siðmenningu" eins og ég óttaðist... Borogrim lítur í kringum sig í rjóðrinu og rýnir í sporin. Hann fer síðan að trénu sem að Velan stendur við.
Ah. Eitthvað kattardýr, dautt villisvín og týndur strákur virðist vera það sem þetta rjóður býður okkur upp á, svona til að koma staðreyndunum á borðið. Hver býður sig fram í að klifra tréð? segir Borogrim með harðneskjulegu glotti.

Johsi
02-03-2008, 11:22 AM
Ætli ég bjóði mig ekki fram Kallar Xerxes til Borogrims þegar hann stekkur upp í tréið.

Lurch
02-03-2008, 02:52 PM
Hygweard skoðar fótsporinn og blóðblettina. Hann lýtur síðan á eftir Xerxes að þjótast upp tréið.
survival check[roll0]
Rodovan strunsar inní rjóðrið svoldið á eftir hinum hann Mundar Hamarinn og muldrar eitthvað um að vera við búinn.
svo á meðan Xerxes er uppi í tréinu þá prófar hann að labba hinumeginn við tréð og skimar í kringum sig
search check[roll1]

Swooper
02-04-2008, 06:39 AM
Xerxes stekkur upp í tréð, liðugur eins og köttur. Hann kemur að villisvíninu þar sem það er skorðað. Það hefur ekki verið dautt mjög lengi, því það rennur ennþá þykkur taumur af blóði úr síðunni á því sem drýpur öðru hvoru á greinarnar fyrir neðan og jörðina. Það hefur verið drepið af einhverju með stórar og beittar klær - eða tennur, þú ert ekki fullkomlega viss. Það eru að minnsta kosti djúp sár bæði á síðunni og um hálsinn.

Hygweard skoðar sporin um rjóðrið og blóðið á jörðinni og kemst að svipaðri niðurstöðu og Velan: Þrenn spor - ein eftir barn, ein eftir eitthvað sem gæti verið stórt kattardýr, ein eftir villisvín. Öll sporin liggja inn í rjóðrið, en einungis kattarsporin liggja út úr því, til suðurs. Blóðið er líklegast úr villisvíninu, en það er engin leið til að vera viss. Hann finnur líka nokkur hár úr svörtum feldi sem hafa fests á grein á þyrnirunna við jaðar rjóðursins.

Rodovan skoðar sig um í kring um tréð, en finnur ekkert markvert nema fleiri tré.

Jói: Ég kastaði upp á Climb fyrir þig, en í framtíðinni, ef þú gerir eitthvað sem þú heldur að gæti mögulega þurft kast uppá, skelltu þá kastinu með (og þetta gildir um ykkur hina líka). Betra að setja kastið með og hætta á að þurfa það ekki, heldur en að setja það ekki með og þurfa það.

Cormorant
02-04-2008, 07:17 AM
"Hver í fjáranum drepur villisvín og festir það upp í tré?, nema þá að svínið hafi flogið þangað af eigin rammleik... Ja, nema að viðkomandi rándýr hafi dregið það upp í tré til að gæða sér á því eftir veiðina, en ég veit nú ekki um mörg dýr á þessum slóðum, sem eru nógu stór til að gera slíkt, en of aum til að verja sig gegn þjófum á þessu sama kjöti." Hér byrjar Velan að muldra dálítið. "Gæti það kannski verið til merkja svæði? hmm... veit ekki..."

Hann röltir í kringum tréð á meðan hann veltir þessu fyrir sér.

"Svínið hefur samt ekki verið dautt lengi, fyrst ennþá blæðir úr því. Við erum því að ég held á volgri slóð. Við ættum að fylgja henni fljótlega"

Hann labbar að skjógarjaðrinum þar sporin hjá kattardýrinu fara aftur inn í skóginn. Þar kíkir hann inn og lítur í kringum sig, fer þó ekki lengra en nokkra metra, og bíður eftir hinum.

Tel ég of snemmt að kasta öðru tracking rolli hér, þar sem við erum ekki komnir út í skóginn strax.... en tek spot tékk, bara svona fyrst að hann kíkir inn, þó að ég búist ekki við að hann finni neitt [roll0]

Cormorant
02-04-2008, 07:21 AM
Guð minn almáttugur, þetta forum ætlar að myrða teningaköstin mín, ég segi preview, og hann drepur kastið mitt, önnur tilraun

Spot Check:
[roll0]

Lurch
02-05-2008, 06:39 AM
Hygweard fylgir sporunum. Hann gerir sig samt tilbúinn að draga sverðið.

Rodovan sem fann ekkert merkilegt nema bara fleyrri tré er samt fullviss um að það sé eitthvað þarna í skóginum að elta þá hann Gengur við hamarinn sem staf.

Lurch
02-05-2008, 09:10 AM
Hygweard kastar uppá Survival [roll0]

Sir Thorri
02-06-2008, 08:58 PM
Aha, slóð, herrar mínir? Segir Waedry um leið og hann og Wuffles fylgja Velan og Hygeward út úr rjóðrinu. Hvernig lýst þér á, fjórfætti félagi?

Ef að ég hef yfirhöfuð þannig vald yfir mínum riding dog, eða hann hæfileika til að skilja mig og rekja slóð eftir lykt, þá innir Waedry Wuffles eftir einhverskonar viðbrögðum.

Johsi
02-11-2008, 04:59 AM
Xerxes notar tækifærið á meðan hann er uppi í trénu og skimar í kringum sig og leitar að ummerkjum um hvort það séu einhverjir nálægt. Sérstaklega athugar hann hvort hann sjái reyk, sem gæti stafað af t.d.báli. Síðan klifrar hann niður og fylgir hinum.

Spotcheck: [roll0]
Climbcheck: [roll1]

Shinlongrien heldur á eftir hinum niður slóðina, en hann gætir sig á að reka lestina til að geta varið hópinn ef einhver ræðst að þeim að aftan. Hann dregur glaivinn sinn og notar hann sem göngustaf, viðbúinn öllu.

Survivalcheck: [roll2]
Spotcheck: [roll3]

Swooper
02-11-2008, 12:21 PM
Hópurinn heldur af stað út úr rjóðrinu. Velan og Hygweard fara fremstir og fylgja slóðinni, hinir elta. Þetta er seinlegt og flókið verk, en í sameiningu tekst ykkur á endanum að fylgja slóð bælds grass, brotinna greina, svarts og brúnleits hárs sem hefur fests á runnum og slíks niður í átt að ánni. Sporin hverfa smá spöl frá ánni sjálfri, eins og þau hafa gert öðru hvoru áður, líklega þegar dýrið klifrar í trjám í stað þess að ganga á jörðinni.

Þar sem þið gangið niður að sendnum árbakkanum sjáið þið liggjandi í sandinum dreng, sem getur ekki verið annar en Arton. Hann er skítugur og fötin hans eru alblóðug, og við hlið hans liggur stórt kjötstykki, líklega læri af hjartardýri. Hann virðist ekki vera með meðvitund.

Cormorant
02-11-2008, 12:48 PM
Velan hleypur í átt að Artoni, og athugar líðan hans í skyndi, hvort að eitthvað af blóðinu er úr honum, og ef svo er, gerir að sárum hans, eða ef færari maður í því kemur til, þá hleypir hann viðkomandi að.
Ef ekkert er að honum, þá reynir hann að vekja hann, og ef það tekst ekki, þá tekur hann hann upp.
"Við verðum að koma honum aftur í þorpið, áður en þetta óargadýr kemur aftur."



Mikið af ef, ef, ef hjá mér

Heal roll:

[roll0]

Jói! svara hraðar :P

Johsi
02-11-2008, 05:08 PM
Xerxes skoðar betur það svæði þar sem sporin hverfa, og hann klifrar upp í tréið sem er næst staðnum til að leita að ummerkjum þar eftir dýrinu.

Climb: [roll0]
Spot: [roll1]
Survival: [roll2]

Shinlongrien notar einnig tækifærið og leitar betur. Ég ætla að leita að sporum hinu meginn við ánna. Shinlongrien klifrar upp í tré næst ánni og stekkur þaðan svo að hann geti svifið yfir ánna. Þar leitar hann síðan að ummerkjum og hvort hann finni kannski aðra slóð sem leiðir burt frá ánni.


Ég geri ráð fyrir að þetta sé á og ekki fljót fyrir þetta stök.
Climb: [roll3]
Jump: [roll4]
Spot: [roll5]
Survival: [roll6]

Ég vona að þetta var nógu fljótt Kalli :p

Lurch
02-11-2008, 06:43 PM
Rodovan hleypur að honum og athugar hvort hann sé meiddur, ef hann er það þá Gerir hann um sárin.
Heal check[roll0]ef mér mistekst heal checkinu þá ætla ég að kasta cure minor wounds

Á meðan stendur Hygweard þarna og lýtur vel út
cha check[roll1]

Swooper
02-13-2008, 10:17 AM
Þegar Velan hleypur að drengnum og krýpur yfir hann, vaknar hann með andfælum. Ykkur til mikillar furðu virðist hann vera óskaddaður fyrir utan hrufluð hné og rispur eftir trjágreinar á handleggjunum - blóðið er ekki úr honum. Hann er hins vegar mjög undrandi á að sjá ykkur og virkar dauðhræddur. Áður en ykkur tekst að róa hann reynir hann að bakka frá ykkur en rekst í blóðugt kjötstykkið og öskrar upp yfir sig. "Hverjir eruð þið!? Hvað eruð þið að gera hér? Hvar er það? Er það farið?"

Heal check óþörf. Jói, þitt aksjón verður afgreitt ögn seinna, þetta gerist of hratt til að þú getir verið búinn að klifra upp í tréð o.s.frv. á meðan.

Sir Thorri
02-13-2008, 11:26 AM
Waedry, sem hefur góðlátlegt andlit og stórt bros, stígur fram og fullvissar drenginn um að hann skuli ekki hafa nokkrar áhyggjur, hann sé í öruggum höndum sem ætli sér að fylgja honum heim á leið. Og óttastu engar forynjur, því hér erum við brynjaðir frá toppi til táar og með fullvæpni! Þér er hólpið, drengur minn! segir Waedry kokhraustur en reynir að halda tóni sínum róandi fyrir drenginn.

Við skulum nú fara varlega í að storka örlögunum... svarar Borogrim með lágum rómi. Hann ávarpar svo drenginn: Ertu ómeiddur, drengur?

Cormorant
02-13-2008, 11:47 AM
Eftir að drengurinn hefur svarað spurningu Borogrims og hefur haft nokkrar sekúndur til að anda, þá tekur Velan til máls:
"Ja, það er nú það, hvort það er farið eður ei." segir Velan, meira út í loftið en nokkuð annað. "En við erum leitarflokkur frá þorpinu, faðir þinn bað okkur um að hjálpa við leitina að þér, en ég er nú meira forvitinn hvað "það" er, segðu okkur frá hvað gerðist."

Sáttur við hraðann núna :D Þetta bara skotgengur

Swooper
02-13-2008, 12:16 PM
Arton róast við orð Waedrys og við að heyra útskýringu Velans. "Ég held það," svarar hann Borogrim. "Það er skrímsli," segir hann svo þegar hann hefur náð andanum aftur. "Stórt skrímsli með rákóttan feld, hvassar klær og beittar vígtennur. Ég held að það hafi fært mig hingað til að geyma mig, og éta mig síðar og ég þorði ekki að flýja," útskýrir hann óttasleginn.

En áður en Arton getur útskýrt meira uppgötvar Shienlongrien nákvæmlega hvar það er, því að þegar hann finnur sér sterklegt tré til að klífa lítur hann sem snöggvast upp í krónuna - og sér tvö gul augu stara niður á móti, úr á að giska fimm metra hæð. Á sama tíma er Xerxes að velta fyrir sér hvað hefur orðið af sporunum, og kemst að réttri niðurstöðu á réttum tíma: "Gætið ykkar! Það er fyrir ofan ykkur!" hrópar hann til hópsins.

En skepnan, hvað svosem hún er, stekkur ekki niður á ykkur með klærnar úti, heldur urrar lágt og stekkur yfir í næsta tré, og áður en allir átta sig á hvaðan á þá stóð veðrið er hún horfin inn í laufþykknið.

Þið megið allir saman taka spot tékk upp á hversu nákvæmlega þið sáuð dýrið áður en það hvarf.

Cormorant
02-13-2008, 12:23 PM
Velan skimast um í flýti, nú með vopn á lofti, og hleypur nær staðnum sem hann hélt að hann sæi dýrið, og reynir að koma betur auga á það.
Spot Check

[roll0]

Johsi
02-13-2008, 01:00 PM
Xerxes tekur fram rapierinn sinn á meðan hann skimar í laufþykknið þar sem hann sá dýrið hverfa.
Spot: [roll0]

Shinlongrien klifrar upp tréið og ætlar í humátt á eftir dýrið.

Climb: [roll1]
Spot: [roll2]

Lurch
02-13-2008, 05:21 PM
Hygweard sem Hefur bara staðið þarna undanfarnar nokkrar sekúndur að lúkka vel, grípur til sverðs síns og tekur á sprett á eftir skrímslinu, og á sama tíma segir hann við megum ekki láta það sleppa.
Hygweard er með base speed 40.

Rodovan tekur Hamarinn sinn í báðar hendur og tilbúinn öllu.

Lurch
02-13-2008, 05:32 PM
Rodovan
spot[roll0]
Hygweard
spot[roll1]

Sir Thorri
02-13-2008, 07:30 PM
Til orrustu! Kallar Waedry og tekur á rás á eftir Hygeward. Waffles! Hafðu auga með barninu, kæri vin! bætir hann við um hæl, sem að Waffles svarar með skilningssljóum svip. Hann sest kannski. Kannski eltir hann Waedry. Hann er hundur, kannski fer hann að elta skottið á sér.

Spot check fyrir Waedry: [roll0]

Borogrim hinsvegar leggur göngustafinn sinn varlega frá sér upp við tré og dregur fram sigðina. Hann skimar umhverfið og víkur ekki frá stráknum. Ekki elta kvikindið of langt, við þurfum að koma stráksa til byggða! Kallar hann í bakið á Hygeward og Waedry.

Spot check fyrir Borogrim: [roll1]

Swooper
02-14-2008, 08:35 AM
Velan og Xerxes ná ekki að sjá dýrið almennilega, það eina sem þeir sjá er eitthvað stórt og loðið uppi á milli trjágreina og laufa. Rodovan og Hygweard standa nær og sjá að þetta er einhvers konar kattardýr, þó stærra en öll fjallaljón sem þeir hafa séð. Shienlongrien og Borogrim sjá það best - stórt, bröndótt kattardýr, hvítt á bringunni, dekkra ofan á. Waedry hefur ekki hugmynd um hvað er í gangi og er ekki alveg viss um hvað hann er að elta...

Þið hlaupið á eftir því, Hygweard er fráastur á fæti og er fremstur, Shienlongrien klifrar fyrir ofan. Það líður þó ekki á löngu áður en það stingur ykkur algjörlega af. Það er eins og skógurinn hafi gleypt það.

Á meðan bíður Borogrim hjá drengnum og fær tækifæri á að virða betur fyrir sér svæðið við árbakkann, þar sem Arton fannst. Grófur, grár sandur virðist vera víðast hvar meðfram ánni. Blóð úr dádýri glansar í sólinni, og læris-stykkið er farið að lykta ögn. Áin er tær og djúp, frekar straumhörð og á að giska fjórir metrar að breidd. Aðeins neðar með ánni, ykkar megin, er stór grár klettur.

Cormorant
02-14-2008, 08:46 AM
"Mikið hleypur þetta kvikindi...." Segir Velan þegar eftirförinni er lokið, og þeir sem hlupu koma aftur í rjóðrið. "Jæja, lítið annað að gera en að fara aftur í þorpið held ég, nema að þið viljið skoða ykkur frekar um?"."Við viljum líklega ekki vera nálægt skóginum þegar að myrkva fer". Á meðan Velan talar, seilist hann eftir örlitlu nesti í pokann sinn, og spyr Arton hvort að hann sé ekki svangur. Hann fær sér smá sjálfur.

Swooper
02-14-2008, 08:48 AM
Arton er glorsoltinn og þiggur bitann með þökkum.

Johsi
02-14-2008, 12:17 PM
Shinlongrien svarar Velan og segir: "Jú við ættum að halda heim á leið, en fyrst langar mig að athuga hvort ég finni einhver ummerki um dýrið. Ég ætla að skoða mig aðeins um hjá steininum þarna niðurmeð ánni. Takið smá hvíld á meðan, þetta ætti ekki að taka langan tíma.

Ég veit ekki hvort þetta kallar á þetta, en til öryggis:
Spot: [roll0]

Xerxes sest við hliðana á Velan og fær sér bita með honum.

Sir Thorri
02-14-2008, 12:43 PM
Jæja, stráksi, ætli það sé ekki kominn tími til að þú segir okkur frá atburðarrásinni. Hvað gerðist? Og ekki draga neitt undan. segir Borogrim við Arton á meðan restin af hópnum snýr aftur eftir eltingaleikinn.

Swooper
02-16-2008, 10:50 AM
"Við vorum í feluleik sunnan við þorpið í gær. Ég fór of langt inn í skóginn þegar ég var að fela mig... þegar enginn kom að finna mig reyndi ég að fara til baka, en ég villtist, og fann ekki hina krakkana. Ég gekk og gekk, ég held að ég hafi verið að ganga í hringi. Öll trén eru eins." Arton fær sér bita af samlokunni frá Velani. "Svo fór að dimma, og ég sá að ég kæmist ekki heim fyrir myrkur. Þá varð ég svo hræddur. Það eru úlfar í skóginum, Fardin skógarhöggsmaður sagði mér það einu sinni. Ég var svo hræddur að... að ég grét," segir hann og lítur hálf skömmustulegur niður. "Þá kom það. Skrímslið. Það hlýtur að hafa heyrt í mér. Ég heyrði fyrst þegar það drap villisvín í runnunum rétt hjá mér, svo... Svo kom það, með svínið í kjaftinum. Ég hélt það myndi drepa mig næst. Ég... ég man ekki alveg hvað gerðist næst. Það næsta sem ég man er að ég vaknaði hér á ströndinni um miðja nótt, við hliðina á þessu kjötstykki þarna. Það hefur verið að geyma mig til að éta síðar. Ég var allt of hræddur til að reyna að flýja, og ég vissi heldur ekki í hvaða átt þorpið er, svo það var tilgangslaust. Skrímslið hefði líka örugglega náð mér strax ef ég hefði reynt það. Ég reyndi að halda mér vakandi, en ég var svo þreyttur. Ég hlýt að hafa sofnað rétt fyrir dögun. Svo komuð þið."

Á meðan fer Xerxes Shinlongrien og kannar svæðið betur. Hann sniglast í kringum klettinn, og viti menn. Þar, falinn á bak við burknagróður, er einhvers konar hola eða hellir, nógu stór til að klöngrast inn í en ekki nógu stór til að standa uppréttur í. Xerxes Shin ályktar að þetta hljóti að vera bæli dýrsins.

Cormorant
02-16-2008, 11:20 AM
Velan hlustar á söguna og klórar sér í skegginu. "Ja dýrið er allaveganna ekki hér lengur, og við skulum fylgja þér til þorpsins, en eftir þetta, þá verður þú að læra á áttirnar, ég skal kenna þér það á leiðinni í þorpið." Þegar Xerxes (það er "ef hann") hóar í hina, þá gengur hann ásamt öðrum í átt að steininum. "Ég skil samt ekki alveg.... Dýrið var komið með stóra bráð í kjaftinn þegar það rakst á Arton... og skilur hann síðan eftir nálægt bæli sýnu, með nýlegt kjötstykki við hliðina. Dýrið er með nóg af mat, gott bæli og á ekki í neinum vandræðum með að ná í meira. Af hverju hefði það viljað éta hann? Ertu svona góður á bragðið, litli? Réðst það einhverntíman á þig, þ.e. beit þig, klóraði þig?"

Velan segir síðan við hina þegar Arton heyrir ekki til: "Ég veit það ekki alveg... en ég held að dýrið hafi aldrei ætlað sér að meiða hann... ég hef svosum fáar sannanir fyrir því, en það virðist meira að segja að dýrið hafi skilið eftir mat handa honum... hvað finnst ykkur?


Charisma check til að fá strákinn í betra skap og róa hann niður
[roll0]

Swooper
02-16-2008, 12:04 PM
Arton hugsar sig um í stutta stund og svarar svo: "Nei, en það bar mig hingað í kjaftinum."

Johsi
02-16-2008, 01:00 PM
Shinlongrien kallar hina til sín og sýnir þeim hellin. "Þetta gæti verið bæli dýrsins. Eigum við að gera eitthvað í málinu núna eða eigum við að íhuga málið betur?" segir hann þegar hinir koma til hans. "Það væri auðvelt að veiða það í gildru fyrst við vitum um bæli þess."

Sir Thorri
02-18-2008, 03:46 PM
Já, hér er sennilega eitthvað sem að við vitum ekki, og væri áhugavert að rannsaka. Ég hygg þó að við neyðumst til að hugsa fyrst og fremst um að koma stráknum heim. segir Borogrim og býr sig undir brottför, í átt til þorpsins. Hann lætur þó fyrst til leiðast og lítur á hellisskotið þar sem að dýrið hafðist við. Ef að bælið er mjög skítugt og illa lyktandi, þá fer hann ekki djúpt inn.

Search check: [roll0]

Swooper
02-18-2008, 04:23 PM
Borogrim þarf að beygja sig talsvert til að komast inn fyrir þröngan hellismunnann. Hellirinn er vissulega illa lyktandi, en ekki svo að dvergur hætti sér ekki lengra. Það tekur augu hans stutta stund að venjast myrkrinu fyrir innan, en sér fljótlega að hellirinn er ekki stór. Nokkur vel hreinsuð bein úr ýmsum skógardýrum liggja á hellisgólfinu. Það sem vekur hins vegar meiri athygli Borogrims er allt hitt sem liggur einnig á hellisgólfinu: Ryðgaðar leifar hringabrynju og tveggja rýtinga, öxi sem virðist ekki sérlega ryðguð og heillegur bakpoki úti í horni. Þar að auki liggur hringuð beinagrind af einhverju sem hefur einhvern tímann verið stærsta slanga sem Borogrim hefur nokkurn tímann séð upp við vegginn. Hann áætlar að hún sé fimm til sex metra löng.

Sir Thorri
02-18-2008, 04:45 PM
Ehm.. Rodovan, heldurðu að þú getir séð af eins og einu sekúndubrotabroti rétt sem snöggvast? segir Borogrim kæruleysislega yfir öxlina á sér og býst til við að reyna, með aðstoð félaga síns, að koma fjársjóðnum út í hljóði. Hann klöngrast jafnframt eins langt og hann kemst inn í hellinn án þess að þurfa skríða, og lítur vel í kringum sig. Hann muldrar nokkur orð fyrir munni sér, og augu hans taka að glóa.

Kasta Detect Magic og tek annað search tékk ef að þess gerist þörf [roll0]

Swooper
02-18-2008, 04:55 PM
Við frekari leit í hellinum finnur Borogrim ekki margt - þó, þegar hann lítur í bakpokann, finnur hann bók vafða í olíuskinn.
Upplýsingar úr Detect Magic sendar í einkaskilaboðum.

Sir Thorri
02-18-2008, 04:55 PM
Á meðan þessu stendur reynir Waedry, grunlaus um hellinn, að fá Arton með sér í að leika parísar-hopp. Kannski hrífst Arton með skrítna gnóminum. Líklegra þykir mér þó að Arton verði aðalega vandræðalegur eins og vill verða raunin við slíkar aðstæður. Þegar fullorðið fólk reynir að miða að leikaldri barna á það það til að skjóta yfir, eða réttara sagt, undir, markið.

Lurch
02-20-2008, 07:18 AM
Hygweard nennir að lokum ekki að elta skepnuna lengur þannig að hann kemur sér að lokum aftur að rjóðrinu.

Rodovan títlar kæruleysislega til Borogrims.

Sir Thorri
02-20-2008, 09:01 AM
Í hálfum hljóðum hvíslar Borogrim til Rodovans: Býst við að þetta sé ekki dýrinu til mikil gagns. Þetta virðist nú samt vera dót sem ætti að vera óhætt að opinbera. Ég ætla þó að rannsaka þessa bók aðeins betur, og öxin er búin minniháttar galdraeiginleikum. Að svo mæltu tekur Borogrim bókina upp úr bakpokanum og rýnir í blaðsíðu af handahófi.

Swooper
02-20-2008, 09:05 AM
Myrkursjón dverga gerir þeim því miður ekki kleift að lesa í myrkri - einungis sjá útlínur skýrt. Borogrim þyrfti því að fara með hana út fyrir eða kveikja ljós til þess að geta lesið hana.

Lurch
02-20-2008, 09:17 AM
Rodovan setur exina í beltið.

Sir Thorri
02-20-2008, 09:28 AM
Dvergarnir drösla þá draslinu út og gera það kunngjört að lítilsháttar fjársjóður hafi verið fundinn. Borogrim handlangar öllu draslinu til Rodovans, þ.m.t. bakpokanum og ryðguðu hringabrynjunni. Þegar öllu draslinu hefur verið komið út og Borogrim búinn að leita af sér allan grun um að ekkert meira sé þar að finna, klöngrast hann út, dustar af sér, og skoðar bókina.

Cormorant
02-20-2008, 02:43 PM
"Nújæja, margt finnst í myrkrinu. Ég held þó að við ættum að leggja af stað til þorpsins, faðir drengsins hlýtur að fara verða búinn með allar neglur til að naga". Í þeim töluðu orðum fer Velan að gera sig reiðubúinn fyrir gönguna til baka.

Johsi
02-21-2008, 06:21 AM
Ef einhver vill að við tökum eitthvað af þessu með í borgina þá get ég hjálpað til með að halda á einhverju. segir Shinlongrien.
Ég er eiginlega sammála Velan um að við verðum að koma okkur í þorpið aftur. Við getum ekki látið fólkið bíða svona fyrst að við erum búinn að finna strákinn. segir Xerxes og lítur óþolinmóður á dvergana.

Lurch
02-21-2008, 08:00 AM
Rodovan horfir á Velan og Xerxes og segir með mjúkri röddu(eða eins mjúkri röddu og hann getur)Þolinmæði er dyggð

Cormorant
02-21-2008, 12:11 PM
Svarar Velan að hæl:

"Dyggðir duga dágóða
Daginn fer að kala
Þolinmæði þrautir vinnur
fer þó mín að dala"

Ég er ekkert að ýta á eftir ykkur, mér bara datt í hug að svara svona :P

Johsi
02-21-2008, 05:09 PM
Xerxes lítur stríðinn á dvergana þegar hann hnýtir aftan á skeytlu Velans:

"Dali dvergar finna,
draga til sín með basli!.
En gull úr heyi þeir spinna
ef aur þeir gera úr drasli"


Xerxes skellir uppúr að svo mæltu.

Góð hugmynd Kalli!

Swooper
02-21-2008, 06:08 PM
Borogrim fær ekki mikið ráðrúm til að skoða bókina vel þar sem ferðafélagar hans virðast flestir vera orðnir frekar óþolinmóðir, en hann blaðar stuttlega í gegnum hana og kemst að því að þetta er gömul dagbók.

Að því búnu haldið þið ferðalangarnir af stað í átt að þorpinu. Þegar þið eruð komnir lang leiðina rekist þið á aðra leitarmenn sem fagna Artoni ákaft. Þeir fylgja ykkur heim í þorpið og, þar sem dagur er að kvöldi kominn, býður Tolmar ykkur upp á kvöldmat á kránni á meðan þið útskýrið fyrir honum hvað gerðist.

Cormorant
02-22-2008, 05:53 AM
Velan sest við borðið og tekur að segja Tolmari söguna.

"Fljótlega eftir að leitin hófst fundum við spor sem við töldum að væru eftir Arton, við fylgdum þeim í gegnum skóginn að rjóðri einu, þar sem spor Artons hurfu, en tvenn önnur tóku við. Ein þeirra voru eftir villisvín sem látist hafði á svæðinu stuttu áður, en hin voru eftir stórt kattardýr. Við fylgdum þeirri slóð þar til við komum að ánni, þar sem við fundum Arton, ómeiddann, ásamt hluta af dauðu dádýri, liggjandi á árbakkanum.
Arton sagði okkur að hann hefði séð dýrið fyrst í rjóðrinu, og að það hafi síðan borið hann að árbakkanum í kjaftinum á sér. Þó varð Artoni ekki meint af. Þetta er þó dágóð vegalengd til þess að draga nokkurn mann, þó strákur sé.
Eftir að við fundum hann þá komum við með hann hingað.

Segðu mér, Tolmar, hefur fleira fólk týnst á síðustu árum hér í skóginum?"

Ja, ég skildi eftir nokkra parta viljandi í bili, við sjáum hvað hann segir síðan.

Swooper
03-08-2008, 08:11 PM
"Ekki svo að það hafi ekki fundist aftur," svarar Tolmar, "eða að minnsta kosti ekki svo að við komumst ekki að því hvað varð af því - það lenti skógarhöggsmaður í hópi af drýslum sem voru algengir hér í skógunum fyrir ekki svo mörgum árum, hann átti aldrei afturkvæmt í þorpið blessaður. Hvers vegna spyrðu?"

Sir Thorri
03-08-2008, 08:33 PM
Borogrim situr dálítið til hliðar við hópinn, og hlustar á samræðurnar með öðru eyranu. Á meðan gluggar hann betur í bókina sem hann hafði með sér úr hellinum, og byrjar á fyrstu síðu. Fyrir framan sig á borðinu hefur hann einnig rýtingana tvo úr hellinum, og biður Rodovan, annaðhvort við þetta tækifæri eða síðar um kvöldið að lána sér öxina svo hann geti skoðað hana betur.

Cormorant
03-09-2008, 08:07 PM
"Bara að athuga hvort að þetta dýr gæti hafað rænt fleirum yfir árin, sem hefðu þá bara týnst, og aldrei fundist.... En ef að Arton er sá fyrsti sem lenti í því.... Ég get bara sagt að ég er ekki viss um neitt ennþá. Ég veit bara að ég er svangur, það er nánast eins og ég hafi verið að segja þessa sögu í tvær vikur samfleytt", segir Velan með glotti, og nær sér snarlega í eitthvað að éta. "Ætla bæjarbúar að fylgja þessu máli eitthvað eftir, eða verður það rætt síðar?"

Swooper
03-11-2008, 01:54 PM
"Við vorum einmitt að ræða það áðan," svarar Tolmar áhyggjufullur. " Við getum ekki leyft þessari skepnu að ganga lausri mikið lengur, hver veit hvenær hún fer að hætta sér nær byggð og ráðast á fullvaxna karlmenn við störf - miðað við lýsinguna sem þið gáfuð á því er dýrið fullfært um það. Þið, hins vegar. Þið eruð sjö saman, vel vopnaðir og brynjaðir og kunnið að verja ykkur. Ef þið eruð tilbúnir til þess að taka það verkefni á ykkur, þá vildum við biðja ykkur um að reyna að losa þorpið við þessa ógn. Þið mynduð að sjálfsögðu fá greitt fyrir það úr þorpssjóðnum. Sem minnir mig á það, þið eigið víst inni hjá mér fundarlaun fyrir drenginn." Tolmar stendur upp og fer inn í bakherbergi, en kemur fljótt aftur með pyngju í hönd og leggur á borðið. "Tuttugu gullmörk á mann eins og um var samið - ég get því miður ekki borgað ykkur meira en það beint út, en ef þið svo kjósið þá get ég innheimt greiða hjá járnsmiðnum eða í þorpinu, ef ykkur vantar eitthvað sem þeir gætu átt."


Borogrim:
Á kápu dagbókarinnar, sem er bundin í leður, er stimplað einhvers konar skjaldarmerki sem þú berð ekki nákvæm kennsl á í fljótu bragði - en þekking þín af táknmyndum í skjaldarmerkjum bendir til að merkið tilheyri mennskri kaupmannaætt*. Bókin er gömul - á því lék svosem enginn vafi, en fyrsta færslan staðfestir það. Hún er dagsett fyrsta dag sáðtungls, 1003 AC - fyrir næstum 19 árum síðan. Fyrstu færslurnar segja þér ekki mikið annað en að bókin tilheyrði einhverjum sem skrifar undir sem G.S.. Hann skrifar um (að þínu mati) ómerkileg ferðalög sín um sveitir og skóga Terenoc, ásamt ferðafélaga að nafni Endril. Þeir virðast hafa verið ævintýramenn, þú lest um skærur við hobgoblin leiguliða, staldrar við færslu um það þegar þeir fella Hippogriff og annað í þeim dúr. Þú þreytist fljótt á lýsingunum, og ferð að blaða hraðar í gegnum bókina í von um að finna eitthvað áhugavert.

Færsla nálægt miðri bók grípur áhuga þinn:
Fjórtándi dagur Uppskerutungls, 1012AC.
Nokkuð hræðilegt hefur gerst! Illi galdramaðurinn Krazen hefur breytt Endril í kyrkislöngu! Við vorum búnir að komast að því hvar fylgsni hans er, og undirbjuggum vel og vandlega áhlaup þangað inn, en í stað þess að við kæmum honum að óvörum var hann viðbúinn. Með einungis örfáum orðum og handbendingu breytti hann líkamlegu formi Endrils í þessa skelfilegu slöngu, og ég gat ekkert gert nema flúið. Mér líður hræðilega - hvað ef hann mun aldrei geta snúið aftur í rétt form? Galdrar Krazens eru sterkir, en ég sver hér með að ég mun reyna allt til að bjarga Endril frá þessum örlögum.
G.S.

Í framhaldi af því eru nokkrar færslur yfir veturinn um það hverja hann ráðgast við um hvernig væri best að vinna bug á bölvuninni. Undir vorið telur hann sig hafa fundið lausnina - Rústir af helgidómi Heilagrar Oshöllu, dýrðlings sem þú kannast ekki við í fljótu bragði, ku hafa einhvern dularfullan kraft til að aflétta göldrum, bölvunum og öðru slíku. Nokkrar færslur segja frá hvernig hann leitar að rústunum, og finnur þær loksins í Blackweald-skógi. Um hásumarið, er síðan síðasta færslan í bókinni:

Áttundi dagur Sumartungls, 1013AC.
Þetta gæti orðið síðasta færslan sem ég skrifa. Á morgun mun ég gera aðra tilraun til áhlaups á bæli Krazens, með þann tilgang einan að bjarga kyrkislöngunni sem er Endril, og koma honum út. Ef það tekst, mun ég fara með hann í helgidóm Heilagrar Oshöllu og reyna að finna út hvernig á að aflétta galdrinum. Megi Ether og allir hans dýrðlingar vera með mér.
G.S.
Restin af bókinni er óskrifuð.

Varðandi rýtingana: Þeir eru báðir svo ryðgaðir að tilgangslaust væri að reyna að nota þá í bardaga, eða í nokkuð annað. Það myndi vekja furðu þína að öxin er næstum ekkert ryðguð, ef þú gerðir þér ekki grein fyrir að galdurinn á henni ver hana tímans tönn.

*Kastaði upp á Knowledge(Nobility & Royalty) fyrir þig - 19 á teninginn...

Cormorant
03-12-2008, 12:31 PM
"Ja, það er nú það, skepnan virtist all ófrýnileg, og við viljum nú ekki ana út í eitthvað strax. Ætli við félagarnir þurfum ekki að ræða það í næði, áður en nokkuð verður samþykkt. Villtu hafa okkur afsakaða á meðan við ráðum ráðum okkar?"
Þegar (ef) Tolmar fer, lítur Velan á þá hina, og spyr: "jæja, hvað segið þið við því? Ég er viss um að dýrið sleppti því að drepa strákinn út af ástæðu, og af hverju var hellingur af nothæfum búnaði í fylgnsi þess? Ekki var neitt lík þar sem hefði getað verið af einhverjum sem var með allann þennan búnað með sér sem dýrið hefur dregið þangað niður. Því hlýtur dýrið annaðhvort að hafa dregið búnaðinn niður, sem það myndi ekki hafa neina ástæðu til að gera, eða það hefur verið skilið eftir í holunni af einhverjum áður."
"Hvað funduð þið í holunni, og hvað stendur í bókinni sem Borogrim er að lesa?"


Ok, ég veit sumsé hvað fannst í holunni, en Velan veit ekki allt, hann var ekki að fylgjast of mikið með því, ásamt því að dvergarnir voru saman í því að togast upp með allt slíkt.

Vona bara að ég sé ekki að tala af mér við þessa ágætu NPC-a, endilega takið fyrir hendurnar á mér ef slíkt fer að gerast.

Sir Thorri
04-02-2008, 10:55 AM
Sjáðu sjálfur. ansar Borogrim og réttir Velan bókina. Taktu sérstaklega eftir færslunum sem ég merkti við. bætir hann við um leið og hann stendur upp. Þar næst röltir hann yfir til Tolmars. Segðu mér Tolmar, hver hér í þorpinu gætir þú trúað að væri best að sér í gömlum sögum varðandi skóginn, kerlingabókum og fjölkyngi?

Johsi
04-12-2008, 11:17 AM
Shinlongrien les yfir öxlina á Velan þegar Borogrim rétir honum bókina. Á meðan segir Xerxes:
"Þetta dýr virtist nú ekki vera það öflugt að við ættum ekki að geta ráðið við það. Þetta eru góðir peningar, eins og allir peningar eru, og auðveldir svo ég legg til að við drífum okkur afstað undir eins og ráðum niðurlögum þess. Það er óþarfi að eyða meiri tíma í að ræða þetta!"

Að þessu mæltu lítur Shinlongrien upp úr bókinni og segir: "Ef eitthvað er að marka þessa bók þá ættum við frekar að fanga það heldur en að drepa það. Og við skulum leysa þð úr álögunum sem það er í."

Xerxes lítur á Shinlongrien í forundran. " Ha? áá..álögum...Hvaða álögum? Ertu að segja að þetta sé sennilega eitthvað stærra heldur en bara eitt lítið og sætt, forðufellandi, mannskætt villidýr?" Xerxes lítur hvössum augum á Shinlongrien, en hann situr bara þögull.

Jæja, eigum við ekki að halda smá áfram með þetta ævintýri okkar?

Swooper
04-22-2008, 08:22 AM
Tolmar klórar sér í kinninni og svarar: "Tja, það væri þá líklega helst hann Ferdinack gamli, kaupmaðurinn í þorpinu. Hvers vegna spyrðu?"

Mikið var! Eigum við að reyna að koma þessu upp í sæmilegan hraða aftur? Vantar ekki alla einhverja truflun í prófunum? :smalltongue:

Cormorant
04-22-2008, 08:38 AM
"Ég er sammála þeim græna varðandi köttinn, höfundurinn minnist á í bókinni einhvern "helgidóm Heilagrar Oshöllu", og segist vera búinn að finna þennann stað. Ég segi að við finnum út hvar sá staður er, og finnum síðan leið til þess að fá köttinn þangað, hvort sem við þá þurfum að lemja hann og setja hann í poka eður ei."

"Og hvað þig varðar Xerxes, hvort hljómar betur að flá einn kött, eða heimsækja gamalt yfirgefið musteri, mögulega fullt af kirkjusilfri?"

Jamm, einhvurnveginn er ávalt meiri sjarmi yfir öllu öðru miðað við setlagafræði, þannig að endilega koma þessu á skrið.

Annars er pælingin hjá mér: Finna musteri, læra á musteri, ná í kött, segja poff köttur, tala við kött. Ferdinack er klárlega maðurinn.

Sir Thorri
04-27-2008, 03:23 PM
Ráðfærum okkur þá við Ferdinack, og ef það er einhver sem þekkir skóginn sérlega vel? Skógarhöggsmaður, veiðimaður? Segir Borogrim og ef að honum er bent á hvar Ferdinack sé að finna, tekur stefnuna þangað, með dagbókina með sér.

Waedry klárar úr glasinu sínu og fylgir kotroskinn á eftir.

Lurch
04-27-2008, 04:55 PM
Hygweard sýpur af mjöðnum sínum og segir síðan Það verður ekki auðvelt að klófesta kvikyndið þið sjáið hvernig það fór með villigöltinn.

Rodovan quaffar restina af öli einhvers annars sem situr við borðið og segir síðan við verðum að fara varlega það er aldrei að vita hvað gerist ef dýrið býtur okkur

Rodovan ætlar að reyna að fifja upp hvernig fór fyrir Heilagri Oshöllu [roll0]

Swooper
04-27-2008, 05:31 PM
Rodovan:
Heilög Oshalla er dýrðlingur í Kirkju Ethers sem naut nokkurra vinsælda fyrir mörgum árum síðan. Hún var nefnd Órjúfanlegi Skjöldurinn af fylgismönnum hennar, og prestar hennar höfðu mikla hæfileika í að verjast og eyða göldrum. Fyrir rúmum þrem aldarfjórðungum fór hún að missa vinsældir hratt af orsökum sem þér eru ókunnar, hof hennar voru eitt af öðru yfirgefin og lögðust í eyði, og fyrir tæplega hálfri öld var hún opinberlega þurrkuð af listanum yfir viðurkennda dýrðlinga Kirkjunnar.

Hef ekki tíma fyrir lengri póst núna, meira síðar.

Viðbót:

Tolmar bendir ykkur á hús neðar á aðalgötu þorpsins sem hýsir verslun Ferdinacks, og bíður þolinmóður meðan þið ráðfærið ykkur við hann um sögu svæðisins.

Það er farið að kvölda, svo verslunin er lokuð. Borogrim bankar upp á og eftir stutta bið kemur gamall og lotinn maður með snyrtilegt hvítt yfirvaraskegg og gleraugu til dyra. "Verslunin er lokuð," segir hann rámri en mjóróma röddu. "Eða er eitthvað annað sem ég get gert fyrir ykkur, herrar mínir?"

Sir Thorri
05-15-2008, 07:31 AM
Sæll Ferdinack, Borogrim er nafnið. Ég myndi vera þér þakklátur ef þú gætir frætt mig um galdrakarl að nafni Krazen, eða dularfullar hofrústir sem að ku finnast hér í Blackweald. Borogrim brosir snöggu brosi og bíður eftir viðbrögðum við þessari óvenjulegu beiðni.

Swooper
05-15-2008, 07:49 AM
Ferdinack lyftir brúnum við þessa undarlegu spurningu. Hann hugsar sig um í góða stund og virðir þá undarlegu samkundu sem stendur í gættinni hjá sér og segir svo með sinni sérkennilegu röddu: "Krazen segirðu? Hann hef ég ekki heyrt um, svo ég muni. Varðandi hofrústirnar, þá ertu líklega að meina gamla musterið upp með ánni, eða hvað? Það er svosem fimm eða sex mílur upp með ánni komi maður að henni beint suður frá þorpinu. Mætti ég spyrja á móti, hvers vegna í ósköpunum spyrðu?"

Sir Thorri
05-15-2008, 03:54 PM
Við erum að rannsaka þetta tvennt. Þakka upplýsingarnar. Svarar Borogrim stuttlega, og snýr sér að félögum sýnum. Hvað skal þá til bragðs taka, félagar?

Cormorant
05-15-2008, 05:31 PM
"Ja, það er nú það, ég sé tvennt í stöðunni, annaðhvort förum við fyrst og athugum musterið, sjáum hvort að það væri í raun hægt að létta slíkum álögum af einhverju þessu líku, nú, eða ná í dýrið, og annaðhvort fá það með okkur, eða setja í poka, og fara svo í musterið."

Á meðan hinir ræða þetta fer Velan aftur til Ferdinacks, og þakkar almennilega fyrir upplýsingarnar, ásamt því að spyrja hann hvort einhver annar hafi spurt að einhverju álíka fyrir mörgum árum síðan, líklega ókunnugur maður. Varðandi afhverju við spyrjum, svarar hann því að hann viti það ekki alveg ennþá, en það komi líklegast í ljós fljótlega
Eftir að hann hefur fengið svar við spurningum sínum, réttir hann Ferdinack gullpening fyrir upplýsingarnar.

Sko, hagkvæmast væri að ná í köttinn, og fara svo í rústirnar, en við vitum svosem ekki fyrir víst að þessar rústir reddi því, og hvað það er í þeim, og hvort að kötturinn sé köttur eða ekki. En þar sem Kötturinn er í leiðinni, þá legg ég til að við reynum að ná honum með, í poka eður ei, fyrst.

Swooper
05-15-2008, 05:52 PM
Ferdinack kannast ekki við að hafa verið spurður að þessu áður.

Lurch
05-23-2008, 06:59 PM
Hygweard segir Persónulega vil ég frekar vera með dýrið með mér þegar við komum að þessu klaustri hvernig sem tautar og raular.

Rodovan segist ég er sammála langleggja félaga okkar hérna ég tel það vera hyggilegt að hafa "dýrið" (gerir gæsalappa handahreyfingar) með okkur. Hvað segið þið félagar.

Johsi
06-16-2008, 05:42 PM
"Jæja, ætli það sé ekki betra að fara eina ferð frekar en tvær"segir Xerxes af hálfum hug.

Eigum við ekki að segja að það sé þá ákveðið! Við skulum leggja af stað í fyrramálið. svarar Xerxes um hæl.
Mótmælir einhver? Ef ekki þá skulum við klára að undirbúa okkur og hvíla okkur svo.

Cormorant
06-19-2008, 01:16 PM
"Allt í lagi, þá er það ákveðið, við leggjum af stað í fyrramálið til þess að veiða dýrið, á einn eða annan hátt, hvort sem við getum "spjallað" við það eður ei.
Ég hef því hugsað mér að ná mér í þennann umrædda poka, til að setja dýrið í, til öryggis. Höfum við einhver ráð til að tala við dýrið, þá með göldum eða einhverju slíku?" Velan fer svo að tala við kaupmenn þá sem á svæðinu eru, og spyr þá um net eða aðrar græjur til að fanga fólk eða dýr með. Eftir það erindi kíkir hann í kringum sig á svæðinu, athugar hvort einhver á kort af nærliggjandi svæði, og sækist frétta af umheiminum, áður en hann fer aftur á gistiheimilið fyrir mat og svefn.

Swooper
06-20-2008, 05:43 AM
Velan getur fundið net, sekk eða slíkt í verslun Ferdinack's í fyrramálið þegar hún opnar. Hann selur allt af generic equipment listanum í PHB sem kostar 50gp eða undir, á eðlilegu verði. Ef einhver ykkar hefur áhuga á vopnum þá er smiður í þorpinu sem getur reddað flestu sem eðlilegt getur talist í svona litlu þorpi - hann er ekki með tveggjahandasverð og lásboga á lager, en einföld spjót, rýtingar, stuttir veiðibogar og slíkt á hann.

((Er endanleg ákvörðun hópsins að leggja af stað í fyrramálið? Ef svo er, tilkynnið Tolmari það in-character og ég spóla yfir á næsta dag. Endilega verið btw duglegri við að nota out-of-character þráðinn, mér finnst eins og enginn lesi hann.))

Sir Thorri
06-20-2008, 06:22 AM
Já, eyðum ei fleiri orðum í þetta, heldur komumst til botns í þessu á vettvangi. segir Waedry og heldur á kránna til afslöppunar og undirbúnings.

Mhm. Hummar Borogrim til samþykkis, og styttir sér stundir með því að glugga frekar í dagbókinni.

Þegar á kránna er komið tilkynnir Weadry Tolmari að hópurinn ætli sér að kanna málið frekar og tryggja öryggi þorpsins.

Sir Thorri
12-05-2008, 08:19 PM
Borogrim trommar í borðið með hanskaklæddum fingrunum, meðan hann blaðar letilega í gegnum dagbókina, nú þegar sennilega búinn að komast að öllu sem nokkurt gagn/verðmæti er í.
Rodovan? Annan mjöð? Datt mér ekki í hug. Ég er ekki frá því að mér leiðist. Tíminn virðist silast svo áfram. Veistu hvað ég á við? Nú er ég þolinmóður dvergur með eindæmum, þótt ég segi sjálfur frá, en sú þolinmæði er þó því háð að eitthvað hafi ég fyrir stafni. Þetta dulitla ævintýri okkar í dag hefur kveikt þeim mun meiri þörf í mér fyrir að koma einhverju í verk. Það verður altént ágætt að komast til botns í þessu máli á morgun. Hefði ég ekkert á móti smá hasar, og verðlaunum í takt við það. Borogrim glottir út í annað meðan hann sötrar mjöðinn gengt félaga sínum.